HÆTT !Arndís Halldórsdóttir

Já ég held að ég sé alveg ákveðin í því að ég nenni ekki að vera með þessa síðu, mér hundleiðist að setja inn myndir hérna og æjhh ég ætla bara að byrja að blogga á myspace síðunni minni.
Þannig að þið sem viljið fylgjast með mér kíkjið bara inná hana...

www.myspace.com/arndiz

Takk fyrir mig.

Helluð helgi !!!Arndís Halldórsdóttir

Sheet verð að segja ykkur frá helginni... Sem var btw alveg mögnuð.

Guðný vinkona kom í heimsókn til mín og lennti hérna kl eitt.. við skelltum okkur í bónus og svo heim.. ég fór so aftur að vinna og hún sótti mig í vinnuna.. fórum heim og chilluðum í smá stund og fórum svo og sóttum magga og brunuðum á stað á Illugastaði í sumarbústað með Tomma, Aldísi og Sveppa..



Svo var bara vaknað kl. 11 og tekið draslið og brunað í bæjinn.. skipt um föt og farið í hlíðarfjall á bretti.. og viti menn.. mér tókst það.. LOKSINS... já Maggi skellti sér með okkur og er alveg brjálaður í þetta núna.. og stóð sig bara helvíti vel kallinn.. !!!
Eftir fjallið var bara farið heim og lagt sig í smá stund.. skellt sér í sturtu .. og út að borða á greifann... !!! Mmmm... elska þann stað !

Svo var það bara VODKA !! hehhe !!! já ég og Guðný ákváðum að skella okkur á Græna Hattinn á Forgotten Lores Tónleika.. sem var geegggjað gaman... og allir blekaðir á því... fólk var byrjað að taka heljarstökk af stólum í lok kvöldsins... eftir tónleikana fórum við á Karólínu ( ég veit samt ekki afhverju við fórum þangað en ok.. ) Þar vor nokkur staup og hehehe gott video tekið inná klósti.. ég, Guðný og Benni helluð í ruglinu... ákváðum svo að fara þangað þegar að það lokaði og ég rölti eitthvað áleiðis niðrí bæ með Benna, Didda og Adda held ég .. OUT !!!!
Vaknaði heima inní rúmi... í 2 bolum, brjóstarhaldaranum og nörlum... !!! WHAT ! ?
Stuttu seinna mætir Guðný.. heheh þvílíkt steikt dæmi... !




Mögnuð helgi í alla staði... takk fyrir komuna Guðný mín.. og eitt ... Þú blæðir fylleríi næst.. :))

" Kjúkklinga bringur og pekanhnetur.. ! "

Allir að svara.. koooomaaa sooo !Arndís Halldórsdóttir

1. Myndir þú fara í bíó með mér ?

2. Myndirðu lána mér pening?

3. Myndirðu tala við mig á msn?

4. Myndirðu nota mig í eitthvað hættulegt?

5. Myndirðu fara með mér ball og dansa við mig?

6. Myndirðu segja símanúmerið þitt við mig?

7. Myndirðu halda framhjá mér?

8. Myndirðu vaska upp og þvo fötin eftir mig?

9. Hvað myndum við helst gera þegar við erum ein saman?

10. Myndirðu segja mér upp ef ég væri fátæk?

11. Myndir þú elda góðan mat fyrir mig?

12. Af hverju varstu að svara þessu spurningum?

13. Ætlar þú að setja þetta á þína síðu svo að ég geti svarað spurningunum?

Kuldakast !Arndís Halldórsdóttir

Það er þvílíki kuldinn hérna á Akureyri eins og er ... já ég er að tala um -16° !!!
Hvað er það ?  

Allavega ætla að koma með smá helgar blogg..
Pabbi og Sigurður komu norður núna síðasta fimmtudag og voru fram á sunnudag.. þeir voru reyndar ekki hjá mér og Magga heldur í einhverji Banka íbúð rétt við sundlaugina.. á laugardaginn skellti ég mér á bretti með Pabba,Matta, Ingunni og Stelpunum.. þvílíkt gaman og rosa gott veður !

Lexa og Hjalti ætluðu síðan að koma á föstudaginn en það var ófært alveg eins og síðast þegar að hún ætlaði að koma.. henni er greinilega bara ekki ætlað að keyra þessa leið.. en eftir nokkuð mörg símtöl á laugardaginn náði ég loxins að draga Hjalta framm úr rúminu, skít þunnann og hann dreif sig með Lexu af stað.. þau voru komin um hálf níu leitið og við Maggi vorum úti að borða á La Vita Bella og þau komu þangað og fengu sér að borða með okkur.. og nokkra bjóra og sona..
Svo héldum við bara heim til okkar, ég , maggi, pabbi, lexa og hjalti.. héldum áfram að fá okkur nokkra öl, horfðum á eagles, roger waters, robbie williams og Bjögga tónleika.. og sungum hástöfum með, maggi og pabbi fóru á trúnó og við fengum leigubíl með nýjustu tækni... það var takki til að loka hurðum á honum.. :)
Ég, Maggi, Lexa og Hjalti fórum á Capone, örugglega 30 skot... bjór... kokteilar.. og allt !!!!! Það lokaði að vísu þar kl 4 svo að þá fórum við bara að tía okkur út... ég flaug á hausinn fyrir utan Capone og sumir voru svo fullir og tóku ekki eftir því á meðan aðrir grétu úr hlátri... ( nefni engin nöfn )
Þegar að við komum heim voru allir ýkt svangir svo að það var farið á búa til Eggjabrauð, kínarúllur og samlokur á liðið.. !!!
(Sumir náðu samt ekki að borða samlokuna... við hliðina á pizzunni.. :)   )

Á sunnudags morgunninn voru allir hressir nema einn... Maggi.
Já hann var þunnur og svaf til 3 á meðan að við hin drifum okkur á Ak-inn og átum sveittann mat, leigðum bretti fyrir Lexu, hittum Pabba og fórum í fjallið í rúma 2 tíma.. komum svo við í Bónus á leiðinni heim og náðum okkur í Betty Crokker súkkulaði köku og fórum heim og bökuðum og sumir dottuðu í nokkrar mín.
Lexa og Hjalti fóru svo heim um 6 leitið á sunnudeginum og við Maggi héldum áfram að liggja í leti og drasli allt kvöldið.. !!!

Ýkt góð helgi þarna á ferð...
Ætla að henda inn myndum svo að ... ENJOY !!!!

Arndís..

Árið 2006Arndís Halldórsdóttir

Jæja.. það er nú komið ansi langt síðan að ég settist fyrir framan tölvuna og pikkaði inn nokkrar línur, að þessu sinni er það smá upprifjun frá árinu 2006 :)


Ég og Maggi fluttum út frá mömmu og sigga 6 janúar 2006 og fórum alla leið til Akureyrar, Maggi sér um flutningabílana og afgreiðsluna hérna fyrir norðan og ég er að vinna í 66°Norður.

Áttum heima í sætri íbúð á Byggðavegi í 3 mánuði eða eitthvað en þurftum þá að flytja út og fluttum í splunku nýja íbúð uppí þorpi sem er voða fín og við komum okkur vel fyrir þar.

Amma veiktist og allt fór í þvílíka stressið .. ! En hún er sem betur fer á bata braut í dag...

Áttum voða lítið sumarfrí og fórum suður í einhverja 10 daga... en það var bara rigning allan tíman svo að við fórum ekkert lengra.
Fórum samt á tónleika í Eglishöllinni með Roger Waters.. sem var alveg frábært.

Vinnum og vinnum og vinnum og vinnum..........

Ég og Maggi búin að vera saman í 2 ár... ( ágúst )

Áskrift á spítala og afi veikur og langamma orðin gömul og lúin..

Ég byrjaði í skóla og er að læra verslunarfagnám hjá SÍMEY ... Sem er æðislegt og alveg frábært :)  Kynntist fullt af fólki þar og bara þvílíkt skemmtilegt.

Ég,mamma, Bjarkey,Helga, Kata, Rut, Elín og Ragnheiður í DK... held að myndirnar segi allt sem segja þarf.. eða bara eitt orð yfir þessari helgi.. : HVÍTVÍN !!!

Desembermánuður var bara YFIRVINNA útí eitt.. og svo flugum við heim á aðfangadag eftir vinnu og vorum fyrir sunnan yfir jólin, fórum heim í 2 daga til að vinna og svo aftur suður yfir áramót... þvílíkt ferðalag en jæja..

Sálin og Gospel 30 des.. Var MAGNAÐ... !!! Rosa flott show..

Já.. þetta er svona árið 2006 í hnotskurn hjá mér..
Vona að þið hafið haft eitthvað gaman af því að lesa þetta hjá mér..

Svo er ég bara í fríi  um helgina og fullt af fólki að koma norður..
Pabbi og Sigurður koma á morgun og svo koma Lexa og Hjalti á föstudaginn og það verður bara tekið Hlíðarfjall á þetta.. :) Hlakka rosa til.. hef ekkert komist í fjallið í allann vetur vegna þess að ég er að vinna flestar helgar og bara brjálað að gera :)

Jæja.. ég ætla að hafa þetta gott í bili..
Endilega haldið áfram að kommennta og þá fer ég að standa mig betur í þessu bloggi..

Enn á lífi...Arndís Halldórsdóttir

Já ég er enn lifandi.. netið er búið að vera bilað heima svo að ég hef ekkert getað bloggað síðan fyrir jólin.

Kem með pistil í kvöld :)

Kv. Arndís

Hressum aðeins uppá þetta !!Arndís Halldórsdóttir

Og allir að svara.. !!!


1 miðnafnið þitt:
 

2. Aldur:


3. Single or Taken:


4. Uppáhalds bíómynd:


5. Uppáhalds lag:


6. Uppáhaldshljómsveit:


 7. Dirty or Clean:


 8. Tattoo eða göt:


 9. Þekkjumst við persónulega?


10. Hver er tilgangurinn með lífinu?


11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?


12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?


13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:


16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?


17. Getum við hist og bakað köku?


18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?


19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?


20. Finnst þér ég góð manneskja?


21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?


22. Finnst þér ég aðlaðandi?


23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?


24. Í hverju sefuru?


25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?


 26. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?

Ekki ein góð frétt !Arndís Halldórsdóttir

Jæja, ég verð að fara að standa mig betur í þessu blogg veseni fyrst ég er að þessu á annað borð. Ekki það að ég hafi einhverjar góðar og skemmtilegar fréttir að segja ykkur, aðeins slæmar!

Afi fer í fyrstu lyfjameðferðina á morgun og það er ekkert nema stress hér norðan heiða yfir því. Æxlið hans hefur dreift sér í eitlana.. þar er ekki hægt að skera svo að það er ekki annað hægt en að treysta á lyf !!!!
Þá eru ekki nema 2 lyfjameðferðir eftir... FYRIR aðgerð... !

AFHVERJU ÞARF AÐ LEGGJA SVONA MIKIÐ 'A EINA FJÖLSKYLDU Á SVONA STUTTUM TÍMA.... OG ÞAÐ YFIR JÓLIN !!!!

Amma er ekki enn búin að jafna sig eftir sitt í sumar þegar að það kom gat á ósæðina hjá henni og hún lá á gjörgærslu Landspítalans í fleiri vikur..
Og ekki bætir heilsa afa og langömmu við allt þetta !

Langamma liggur ennþá á spítalanum og byður til Guðs hvern einn og einasta dag um að fá að deyja !

Ég helda að ég verði að lýsa því yfir hér með að ég held barasta að ég nenni ekki að standa í öllu þessu jóla veseni og stressi, ég er alveg nógu stressuð fyrir og veit eginlega ekkert hvað ég vil gera, ég næ ekki að einbeita mér í vinnunni og sykur í öll mál er voða vinsælt þessa dagana.. !!!

Vill einhver ráðleggja mér????

Komin heim frá DK !Arndís Halldórsdóttir

DANMÖRK VAR ÆÐI !!!!!
Hérna kemur smá ferðasaga...
Á fimtudaginn síðasta flaug ég suður til að byrja með og heimsótti ömmu og afa og langömmu á spítalann.. kíkti síðan heim og mamma eldaði handa mér ýkt gott pasta, eða Siggi eldaði það reyndar svo það yrði tilbúið þegar að við komum heim, en það var ótrúlega gott :)
Svo fór ég til Ásu vinkonu í neglur, voða fín, Anna kom so og sótti mig þangað og skutlaði mér aðeins til tengdó og svo fór ég bara heim og lagði mig í rúma 3 tíma áður en við fórum útá völl...
 Kl. 06 um morgunninn var so fengið sér einn öllara og svo í flug kl . 07:15 Vorum svo komnar út fyrir hádegi á dönskum tíma og þá var farið á hótelið, svo var fengið sér að borða á einhverjum stað í Nyhavn og við fengum okkur allar humarsúpu sem var so sölt að við komum henni ekki niður, nema mamma hún borðaði hana með bestu list !!
 Þegar að við vorum svo búnar að borða og smá hvítvín með þá var haldið á strikið og byrjað að versla.. Þegar að við höfðum rölt inn í aðra hverja búð allt strikið var farið heim í sturtu og gert sig redí fyrir kvöldmatinn.. við skelltum okkur út að borða á stað sem heitir Reef´N´Beef og er svona svolítið öðruvísi matur... Þar smakkaði ég krókódílakjöt og kengúrukjöt sem bæði var alveg æðislegt.. svo var einn cosmópolitan þar og fullt af hvítu.. :) vorum þá alveg búnar á því eftir að hafa setið þarna og kjaftað í fleiri klukkutíma og borðuðum yfir okkur af æðislegum mat !
 Vöknuðum um 10 leitið á laugardeginum og fengum okkur morgun mat og fórum svo í Fiskitorvet sem er veslunarmiðstöð þarna .. ég fann mér nú ekki mikið þar en þó eitthvað en ég átti ekki roð í hinar kjellingarnar hehe..!
Um kvöldið var svo farið í tívoliið sem var inní ferðinni.. hlaðborð.. sem var gjörsamlega hrikalegt.. léleg þjónusta, fengum ekki alla réttina og hver réttur var bara smakk og allt fiskur !!! Síld, lax og rauðspretta svo eitthvað sé nefnt ! En nóg var drukkið þar og ég ætla ekkert að fara nánar útí það. . eftir það fórum við 6 kjellingar á eitthvað diskótek rétt fyrir ofan strikið .. urðum þar 3 eftir alveg til kl 5 um morgunninn og löbbuðum heim, niður strikið á sokkalistonum blekaðar og vorum mættar um hálf sex leitið um morguninn...
Þó svo að ég hafi komið síðust heim þá var ég fyrst í morgunmatinn ásamt mömmu.. ( og alls ekki edrú )
Get nú alveg sagt ykkur að 80% hópsins var ekki heill heilsu þennan dag.. !
En þrátt fyrir það var haldið í enn eitt mollið... Field´s. Þar gátm við sko verslað !! Svo var farið uppá hótel eftir það og reynt að troða síðustu pokunum í töskurnar, sem gekk mis vel, en það tókst á endanum.. En við þurftum 3 leigubíla til að ferja okkur uppá flugvöll.. vorum samt bara 8 saman.. pínu mikill farangur þar á ferð !!
Komum svo heim seint á sunnudagskvölinu og þá var voða næs að leggjast uppí rúm og ég er viss um að allar hafi verið fljóar að sofna..
Ég kom svo aftur norður í gærkvöldi og er mætt í vinnu . . !

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, reyni að henda inn myndum sem fyrst :)

Arndís

Langt síðan..Arndís Halldórsdóttir

Jæja, það er nú komið svolítið langt síðan að ég hef tjáð mig hérna síðast.. en jæja, ætla að reyna að bæta það upp með smá færslu.

Ætla að byrja á fréttum af fjölskyldunni.
Amma og afi skelltu sér til london síðustu helgi og aðeins að slaka á áður en allt byrjar, afi fer semsagt í lyfja núna í nóv og aðgerð í janúar.. Ég ætlaði að hitta þau á föstudaginn áður en þau fóru en við vorum veðurteft hérna heima svo að við komumst ekki suður fyrr en á laugardeginum.
Ég kíkti svo á langömmu á sunnudaginn og hún er öll að hressast kellingin en samt orðin kex rugluð greyið..

Skólinn gengur bara vel hjá mér og fyrsta lotan senn á enda. Klára þetta núna í næstu viku.. Þá tekur crazy desember vinna við og brjálað að gera en fyrst ætla ég að skella mér til DK .. með mömmu og frænkonum.. hlakka rosa til að komast í smá frí... og VERSLA... hehe og drekka hvítvín og kokteila alla helgina.. úúú næææsss !!!

Já svo er það bara desember og shet ég var að skoða vinnuplanið mitt og það hljóðar uppá 50 áætlaða yfirvinnu tíma.. og kanski meir ! Þannig að það verður vægast sagt mikið að gera hjá kellunni þann mánuð.

En allavega..CSI er að byrja...

Arndís... snjókarl kveður að sinni ;)

Klukkan

Auglýsing

Könnun

Sumarið á enda hvað á að gera í vetur ?

Nýjasta nýtt !

MYNDIRNAR FRÁ DK ERU KOMNAR INN !!! ;-)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...